
Við Túngötu 18 á Siglufirði stendur reisulegt hús á þremur hæðum. Húsið hefur verið gert upp á vandaðan hátt og í því eru tvær íbúðir. Á efri hæðum er stór íbúð með 5 herbergjum, eldhúsi, stofum og baðherbergi en á neðstu hæð er stofa, eldhús, svefnherbergi og bað. Rúm fyrir 10 manns, hægt að bæta við dýnum. Tilvalin helgardvöl fyrir hópa, saumaklúbba og félagasamtök árið um kring. Einstök veðursæld og frábær aðstaða til skíðaiðkunar og gönguferða.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli